Endurnýjanleg orka er unnin frá orkulind sem endurnýjar sig stöðugt þó af henni sé tekið og helst þannig í jafnvægi af náttúrunnar hendi.
Þannig er orka á borð við þá sem unnin er úr vatni, vindi og jarðvarma skilgreind sem endurnýjanleg. Orkulindir jarðefna, t.d. olía, kol og gas, teljast ekki endurnýjanlegar þar sem þær eru aðeins til í takmörkuðu magni.
Landsvirkjun vinnur orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Jafnframt leggur fyrirtækið áherslu á að nýta auðlindir á sjálfbæran hátt, en hlutverk þess er að hámarka afrakstur af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi.
Með sjálfbærri þróun er vísað til þróunar þar sem litið er til lengri tíma og snýst hún um að auka efnahagsleg verðmæti, styrkja samfélagið jafnframt því að viðhalda gæðum náttúrunnar.
Sjálfbærni og endurnýjanleiki eru tveir ólíkir hlutir. Sjálfbær orkuvinnsla lýsir því hvernig orkulind er nýtt en endurnýjanleiki lýsir eðli hennar. Endurnýjanlega auðlind er þannig hægt að nýta á sjálfbæran eða ósjálfbæran hátt.
Landsvirkjun hefur skilgreint verklag sitt til að stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda með því að hafa skýra stefnu um samfélagslega ábyrgð. Þá hefur fyrirtækið jafnframt tileinkað sér innra verklag byggt á alþjóðlegum matslykli (Hydropower Sustainability Assessment Protocol, HSAP) um sjálfbæra vatnsorkuvinnslu. Við úttekt samkvæmt HSAP á rekstri Blöndustöðvar árið 2013 fengust sérstaklega góðar niðurstöður en rekstur stöðvarinnar hlaut framúrskarandi umsögn þar sem hann uppfyllti kröfur í bestu mögulegu starfsvenjum í 14 flokkum af þeim 17 sem teknir voru til skoðunar.
Varmi
Ísland er staðsett á eldvirkum Atlantshafshryggnum og hér er auk þess mikil úrkoma árið um kring. Það gerir landið sérlega ríkt af jarðvarmaauðlindum þar sem krafturinn í iðrum jarðar hitar upp vatn sem seytlar sífellt ofan í jarðgrunninn. Hér á landi hefur auk þess skapast mikil sérþekking á jarðvarmavinnslu sem gerir okkur kleift að nýta þessar auðlindir á sjálfbæran hátt.
Vatn
Við orkuvinnslu með vatnsafli er hreyfiorka vatnsins nýtt í stöðugri hringrás þess um land, sjó og loft. Ísland er staðsett í miðju lægðabelti Atlantshafsins þar sem úrkoma er mikil. Hér á landi rennur mikið af vatninu frá hálendinu og niður á láglendi sem gerir landið ákjósanlegt til vatnsorkuvinnslu.
Vindur
Vindmyllur umbreyta hreyfiorku vindsins í raforku. Staðsetning Íslands í miðju lægðabelti Atlantshafsins gerir landið að vindasömum stað með mikla möguleika á frekari nýtingu vindorku. Landsvirkjun rekur tvær rannsóknarvindmyllur á Hafinu á Þjórsársvæðinu.